Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að í kjölfar frétta af farþegum ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers, sem lentu í hrakningum 7. janúar sl. uppi við Langjökul, hafi verið óskað eftir gildandi öryggisáætlun og skýringum á tilurð atviksins.
Í tilkynningunni segir að „hver sá sem framkvæmir skipulagðar ferðir innan íslensks yfirráðasvæðis ber ábyrgð á því að útbúa skriflega öryggisáætlun. Hlutverk Ferðamálastofu er að hafa eftirlit með því að öryggisáætlanir séu til staðar og séu uppfærðar eins og þörf er á skv. 11. gr. laga um Ferðamálastofu nr. 96/2018. Öryggisáætlun skal gerð fyrir hverja tegund ferðar og skal innihalda áhættumat, verklagsreglur, viðbragðsáætlun og atvikaskýrslu.“
Kalla eftir úrbótum á áætluninni
Eftirlit og skoðun Ferðamálastofu beindist fyrst og fremst að öryggisáætlun vélsleðaferðarinnar. Ferðamálastofu barst öryggisáætlun fyrirtækisins og innihélt hún þá þætti sem gerður er áskilnaður um í lögum. Það er því mat Ferðamálastofu að öryggisáætlun Mountaineers uppfylli formskilyrði 11. gr. laga um Ferðamálastofu nr. 96/2018. Ferðamálastofa skoðaði einnig atriði sem varða öryggisáætlanir almennt og gerði athugasemdir við að einstaka þættir öryggisáætlunarinnar mættu vera ítarlegri og skýrari m.a. varðandi veðurfar og -skilyrði, kynningu á öryggisreglum og -þáttum til farþega og starfsmanna, leiðarval og ytri aðstæður.
Ferðaþjónustufyrirtækinu Mountainers hafa verið kynntar athugasemdir Ferðamálastofa og hefur því verið veittur mánaðarfrestur til úrbóta.