5 C
Selfoss

Prófkjör Framsóknar í Suðurkjördæmi á laugardag

Vinsælar fréttir

Prófkjör Framsóknar í Suðurkjördæmi fer fram á morgun laugardaginn 19. júní. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst á þriðjudaginn og sagði Magnea Björnsdóttir, formaður kjörstjórnar, að þátttaka hafi farið virkilega vel af stað. Enn er hægt að kjósa utankjörfundar í dag 18. júní og er kosið á Höfn, Selfossi, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ. Kjörstaði á laugardaginn má sjá á Facebooksíðunni „Framsókn í Suðurkjördæmi“ og framsokn.is

Í framboði eru:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti
  • Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 2.- 4. sæti
  • Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg – sækist eftir 3. sæti
  • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Vík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. Sæti

Talning fer fram sunnudaginn 20. júní og verða úrslit kunngjörð milli kl. 16 og 17 á Hótel Selfossi.

Nýjar fréttir