7.8 C
Selfoss

Tinna Sigurrós og Vilius valin best

Vinsælar fréttir

Lokahóf handknattleiksdeildar Selfoss fór fram í sumarblíðu í Hótel Selfoss á laugardagskvöldið síðastliðið. Kátt var á hjalla og gleðin var ótakmörkuð af sóttvarnarreglum. Dagskráin var með hefðbundnu sniði og var veislustjóri kvöldsins Gunnar okkar Sigurðarson. Á hófinu voru veitt einstaklingsverðlaun fyrir meistaraflokka og U-liðið auk þess sem félagi ársins var valinn og aðrar viðurkenningar veittar.

Tinna Sigurrós Traustadóttir var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna auk þess að vera markadrottning og sóknarmaður ársins. Vilius Rasimas var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla. þá var Andri Dagur Ófeigsson valinn besti leikmaður U-liðsins auk þess að vera markakóngur liðsins. Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir var valin efnilegasti leikmaður og varnarmaður ársins, en Ísak Gústafsson var valinn efnilegastur karlamegin og Tryggvi Þórisson varnarmaður ársins. Hergeir Grímsson var sóknarmaður ársins og baráttubikarinn fengu þau Atli Ævar Ingólfsson og Katla Björg Ómarsdóttir. Einnig fékk Sölvi Ólafsson viðurkenningu fyrir 100 leiki spilaða fyrir félagið.

Selfoss TV var valið félagi ársins en þeir Árni Þór Grétarsson og Brad Egan tóku við viðurkenningunni, enda hausinn og hjartað í útsendingum Selfoss TV. Selfoss TV hefur verið öflugt í allmörg ár núna, en í ástandinu í vetur þegar íþróttahús landsins voru lokuð áhorfendum hefur mikilvægi Selfoss TV aldrei verið meira. Strákarnir á Selfoss TV öxluðu þá ábyrgð og sendu beint frá öllum heimaleikjum meistaraflokkanna sem ekki voru á Stöð 2 Sport, U-liðanna ásamt flestum leikjum þriðja og fjórða flokks. Alls voru þetta 56 útsendingar sem rúmlegar fimmtíu þúsund manns hafa horft á.

Nánari upplýsingar um viðurkenningar má finna á vefsíðu félagsins www.selfoss.net.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju.

Umf. Selfoss/esó

Árni Þór og Brad, tóku við viðurkenningu fyrir hönd Selfoss TV. Mynd: Umf. Selfoss.
Sölvi með viðurkenningu fyrir 100 spilaða leiki. Mynd: Umf. Selfoss.

Nýjar fréttir