5.6 C
Selfoss

Jazz-hátíð í Skógum

Vinsælar fréttir

Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í átjánda sinn laugardaginn 17. júlí.

Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð laugardagskvöldið 17. júlí kl. 21:00. Þar kemur fram kvartett söngkonunnar Stínu Ágústsdóttur en hún býr og starfar í Svíþjóð þar sem hún hefur gert garðinn frægan. Stína á ættir sínar að rekja í Skóga en hún er barnabarn Magnúsar Gíslasonar sem var fyrsti skólastjóri Skógaskóla. Með henni leika þeir Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þau munu flytja hressilega og fjölbreytta dagskrá.

Í Skógakaffi verður boðið upp á tónlist laugardaginn 17. júlí frá kl. 14-17. Þar verða óformlegri tónleikar eða nokkurskonar jam session. Sigurður Flosason leikur á saxófón, Snorri Sigurðarson á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar,  Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þeir mun flytja fjölbreytta efnisskrá. Einnig munu Andrés og Agnar leika lög af nýútkominni plötu sinn „Aldarfar“ en á henni heiðra þeir Jón Múla Árnason 100 ára og verk hans. Ókeypis er inn á þessa tónleika og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur. 

Fyrri hátíðir í Skógum hafa fengið frábæra aðsókn og góða dóma. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að njóta góðrar og fjölbreyttrar tónlistar í tengslum við lifandi náttúru Íslands eins og hún gerist fegurst. Aðstandendur hátíðarinnar eru Skógasafn og Sigurður Flosason. Hátíðin nýtur stuðnings Rangárþings eystra, Skógasafns og Hótel Kvernu. Aðgangur er ókeypis í Skógakaffi, en aðgangseyrir er kr. 2.900 í Fossbúð.

Nýjar fréttir