Íslendingar hafa tækifæri til að byggja upp nýjan grænan iðnað á sviði þörungavinnslu. Hér landi eru kjöraðstæður á heimsvísu, hreinn sjór og stór hafsvæði. Fjárfestar áhugasamir en lagaumgjörðin og regluverkið er enn ekki nógu gott. Alþingi þarf að skapa trausta umgjörð um þennan iðnað og skapa skýra stefnu. Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga þess efnis.
Þörungar framleiða súrefni
Þörungar er ekki bara næringarrík fæða fyrir skepnur og mannfólk heldur framleiða þeir líka stóran hluta súrefnis jarðar, allavega helming alls súrefnis og sumir vísindamenn segja um 90%. Þörungar hreinsa sjóinn og þá má einnig nýta sem áburð. Sumar smáþörungategundir eru olíuríkar og úr þeim er hægt að framleiða lífeldsneyti sem endurnýtir koltvísýring úr loftinu. Það er því ljóst að sjálfbær öflun þörunga og aukin nýting þeirra getur hjálpað til við að minnka álag á önnur vistkerfi jarðarinnar, draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og hafa jákvæð áhrif á vistkerfi hafsins.
Mikil eftirspurn
Heimsmarkaður fyrir þörunga er stór og fer vaxandi. Samkvæmt skýrslu Report Linker um heimsmarkað fyrir þörunga frá júlí 2020 er áætluð velta árið 2020 fyrir þörungaprótein 912,8 millj. dala og því spáð að hann vaxi í 1,3 milljarða dala árið 2027. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að það sé vaxandi eftirspurn eftir matvæla- og drykkjarafurðum sem byggðar eru á þörungum. Efni úr þeim má finna í mörgum matvælategundum, snyrtivörum og iðnaðarvörum eins og málningu, dekkjum o.fl. Vöxtur í þörungaframleiðslu í heiminum er áætlaður um 7,4% á ári til ársins 2024 og að veltan verði um 1,1 milljarður Bandaríkjadala árið 2024 samkvæmt greiningu Sjávarklasans frá nóvember 2019. Í þessari grein liggja mýmörg áhugaverð tækifæri fyrir íslenskt athafnalíf.
Hvernig getum við bætt umgjörðina?
Greinarhöfundur hefur lagt fram þingsályktunartillögu ásamt þingflokki Framsóknar um að umhverfis- og auðlindaráðherra í samvinnu við sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra geri aðgerðaáætlun um þörungaræktun sem liggi fyrir eigi síðar en 1. mars 2021. Einnig er kveðið á um að ráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda hvað varðar þörungarækt eigi síðar en 1. maí 2021. Flutningsmenn telja að sá tímarammi ætti að vera nægilegur enda unnt að líta til fordæma nágrannaþjóða okkar, eins og Færeyja og Noregs, þar sem reynsla er þegar komin á framkvæmd sambærilegra lagaákvæða.
Með því að fjárfesta í menntun, rannsóknum og frumkvöðlafyrirtækjum á þessu sviði getur Ísland skapað sér sess á meðal forystuþjóða í fullnýtingu þangs og þara og ræktunar smáþörunga.
Áfram veginn!
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins