-4.8 C
Selfoss

Adólf Ingvi nýr útibússtjóri Íslandsbanka á Selfossi

Vinsælar fréttir

Adólf Ingvi Bragason hefur verið ráðinn útibússtjóri Íslandsbanka á Selfossi. Hann tekur við starfinu af Jóni Rúnari Bjarnasyni, sem verið hefur útibússtjóri í tæp 24 ár. Jón Rúnar lætur af störfum 1. maí nk.

Adólf Ingvi starfaði sem útibússtjóri Sjóvá á Suðurlandi á árunum 2010-2018 og náði þjónustusvæði félagsins allt frá Selfossi og austur að Öræfum, að Vestmannaeyjum meðtöldum. Síðast var hann fjármálastjóri Mussila, sem er nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði stafrænnar tónlistarkennslu. Hann hefur jafnframt starfað sem þjálfari í meistaraflokki og hjá yngri flokkum í knattspyrnu og er með UEFA A þjálfaragráðu. Hann var um tíma formaður Knattspyrnudeildarinnar á Selfossi.

Adólf Ingvi er með BSc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og MBA gráðu frá Háskólanum í Árósum.

Nýjar fréttir