1.7 C
Selfoss

Eldra fólk vill hafa áhrif á eigið líf

Vinsælar fréttir

Hellisheiði lokað

Andi jólahátíðarinnar

Stjórnmálamenn hafa mikinn áhuga á kjörum eldra fólks -fyrir kosningar. Þeir vita að sextíu ára og eldri eru 75 þúsund og öll með atkvæðisrétt! Þess vegna er okkur eldri lofað gulli og grænum skógum fyrir kosningar -í von um atkvæði. Áhugi stjórnmálamannanna dvínar strax að kosningum loknum.

Á landsfundi Landsambands eldri borgara (LEB) í maí s.l. voru samþykkt „Áhersluatriði eldra fólks í komandi alþingiskosningum“ Stefna í fimm liðum sem fjallar um kjaramál, starfslok, heilbrigðisþjónustu, búsetuúrræði og einföldun laga um málefni eldra fólks (Nánar á www.leb.is). Nú er verkefnið á næstunni að kynna áhersluatriðin fyrir væntanlegum Alþingismönnum.

Á Suðurlandi eru starfandi 13 félög eldri borgara með um 2.200 félaga. (55 félög alls á landinu með um 30.000 félagsmenn). Fulltrúar frá meirihluta félaganna hafa hist á tveim fundum til að ræða samstarf um aðgerðir í aðdraganda alþingiskosninga.

Einkum voru tvær leiðir ræddar: Að bjóða frambjóðendum í Suðurkjördæmi á fund með félagsmönnum í félögum eldri borgara á Suðurlandi. Þar væri væntanlegum þingmönnum gerð grein fyrir áhersluatriðunum og þeim jafnframt gefinn kostur á að gera grein fyrir sínum áherslum í málefnum eldra fólks.

Hin leiðin var að eldra fólk mæti á félags- og framboðsfundi flokkanna og komi áhersluatriðunum á framfæri við frambjóðendur. Ákveðið var að fara þessa leið og fimm manna aðgerðahópi falið að annast undirbúning og skipulag aðgerða. Hópinn skipa Þór Ísfeld Vilhjálmsson, Vestmannaeyjum, sími 897 9615, Þorgrímur Óli Sigurðsson, Selfossi, sími 698 3100, Margrét Guðmundsdóttir, Mýrdal sími 860 2810, Elín Siggeirsdóttir, Biskupstungum, sími 891 8531  og Jón Ragnar Björnsson, Rangárvallasýslu, formaður, sími 6990055. Þeir sem vilja taka þátt í þessum aðgerðum eru beðnir að hafa samband við eitthvert okkar í hópnum. Við verðum með áhersluatriðin fimm á blaði sem hægt er að afhenda frambjóðendum og öðrum, sem áhuga hafa. Einnig blað með nánari útlistun á áhersluatriðunum fyrir þá sem kynna áhersluatriðin.

Reynslan sýnir að stjórnvöld eru treg til að liðsinna okkur. Þau hafa líka kvartað yfir því að erfitt sé að vita hvað við viljum. Kannski höfum við ekki verið nægilega samstíga í kröfugerðum en nú hefur myndast skýr og afgerandi samstaða meðal félagsmanna um allt land. LEB hefur kynnt stjórnmálaflokkunum áhersluatriðin og með því að hafa nú skipulega samband við „grasrótina“ á stjórnmálafundum, má vænta þess að dropinn holi steininn og réttlætið sigri.

Við skulum ekki gleyma því að við tókum fullan þátt í að byggja upp þetta þjóðfélag og sköpuðum mikil verðmæti sem koma afkomendum okkar til góða.

Aðgerðahópur félaga eldra fólks á Suðurlandi

 

Nýjar fréttir